Saturday, February 16, 2008

Fyrsta tilraun hjá Þórdísi

Ég komst að því að bangsar eru mjög góðar fyrirsætur. Eru á sama stað í lengri tíma og verða ekkert þreyttir á því að ég taki af þeim myndir.

Vélin var stilt svona stilt hjá mér:

Tók þær með 18-55 linsunni. Ég notaði flassið ýmist beindi ég því upp eða beint á þá. Vélin var stilt á M og F8 og 1/125 sek. Hún var stilt á AF. Með þessari stillingu er mjög líklegt að rétt lýsing náist.

Hér að neðan eru tvær myndir sem ég er sátt við, er ekkert búin að ph þær.







Við hjónin erum með smá áskorun á hvort annað, þemað hjá okkur þessa vikuna er ,,á ferð" Ég mun setja inn þær myndir sem við tökum eftir viku.

Friday, February 15, 2008

Mín fyrsta prufa

Hér munu koma inn myndir af því sem ég er að leika mér að, einnig mun ég setja inn jafn óðum hvernig ég tók myndina. Ég geri þetta einungis fyrir sjálfan mig og ábyrgist ég ekki að það sem ég set inn sé 100% rétt. Ég á Canon eos 400d 18-55 linsu, 55-200 linsu og síðan flass 380EX. Næst á dagskrá er að eignast þrífót og fjastýringu við vélina, en það kemur síðar.